-->

Amma Skrattans
Netið tekið í nefið upp á gamla mátann. Upphafið málfar og sóðatal, þó án þess að farið sé yfir strikið, íblandað nærgöngulli sjálfsrýni Saurhuga.


Nýjar tuggur
Gamlar tuggur

This page is powered by Blogger. Isn't yours?
Friday, March 30, 2001
Aulaþríundin þegir í dag. Skrattinn líka. Mikið hugsað og vopnin brýnd.

Loks kom að því að Skrattinn hitti ömmu sína og kemur þar vel á vondan því margt hefur ungviðið talið sig meira að burðum en forverana.

Skoðanaskeytin sem hafa flogið seinustu daga á milli okkar meinlausra grínara og hinnar sjálfskipuðu heilögu þrenningar hafa fengið Skratte til að kalla á Ömmu sína. Amma verður hrollköld rödd skynseminnar bak við tjöldin, sönnun þess að í kolli vorum hrærist vissulega hjarta heilbrigðrar sálar en ekki þess minnihlutamorðingja sem siðsemismeinlokurnar þrjár vilja meina að ég sé.

Ég ætla að halda þessum færslum fyrir mig til að byrja með, en hver veit hvað gerist þegar einhver reynsla er komin á þetta nýja skraf.